Aðventuhátíð barna í Neskirkju

Neskirkja.
Neskirkja. mbl.is/Kristinn Magnússon

Aðventuhátíð barna verður haldin í Neskirkju í dag, fimmtudaginn 7. desember klukkan 17:30. Neskirkja býður börnum í leikskóla og fyrstu bekkjum grunnskóla, ásamt foreldrum, á aðventuhátíð í kirkjunni.

„Þar verður bæði hátíðleiki og skemmtun, aðventuljós, söngur og jólasaga. Töframaðurinn Jón Víðis bregður á leik og Barnakór Neskirkju syngur undir stjórn Jóhönnu Halldórsdóttur. Aðventuveitingar verða á kirkjutorgi eftir samveruna. Umsjón hafa prestar kirkjunnar og starfsfólk barnastarfs,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert