Innflytjendaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki úr þróunarsjóði innflytjendamála.
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki úr þróunarsjóði innflytjendamála. mbl.is/Ómar Óskarsson

Innflytjendaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr þróunarsjóði innflytjendamála. Til ráðstöfunar eru 15 milljónir króna og geta styrkir að hámarki numið 75% af áætluðum heildarkostnaði verkefnis.

Tilgangur sjóðsins er að efla rannsóknir og þróunarverkefni á sviði innflytjendamála með það að markmiði að auðvelda gagnkvæma aðlögun innflytjenda og íslensks samfélags.

Í tilkynningu frá velferðarráðuneytinu kemur fram að við ákvörðun um styrkveitingar verður lögð áhersla á þrenns konar rannsóknar- og þróunarverkefni, þ.e. verkefni sem tengjast börnum og ungmennum af erlendum uppruna, verkefni sem falla vel að áherslum þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2016–2019 sem samþykkt var á Alþingi 20. september 2016 og verkefni sem stuðla að virkri þátttöku innflytjenda í samfélaginu og auka sýnileika þeirra.

Önnur rannsóknar- og þróunarverkefni koma þó einnig til álita.

Félags- og hagsmunasamtök innflytjenda eru sérstaklega hvött til þess að sækja um, en styrkir verða veittir félögum, samtökum og opinberum aðilum. Einstaklingar geta aðeins sótt um styrki til rannsókna. Unnt er að sækja um jafnt á íslensku og ensku.

Umsóknarfrestur er til 31. janúar 2018 og einungis er hægt að sækja um rafrænt. Umsóknarformið aðgengilegt á eyðublaðavef Stjórnarráðsins, minarsidur.stjr.is.

Í byrjun janúar mun innflytjendaráð standa fyrir opnum kynningarfundi fyrir væntanlega umsækjendur um umsóknarferlið, áherslur ársins og reglur sjóðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert