Fótur af klaufdýri í innfluttu spæni

Spænir er meðal annars settur undir alífugla, sauðfé og hross …
Spænir er meðal annars settur undir alífugla, sauðfé og hross hér á landi. AFP

Lífland hefur innkallað spæni frá Staben í Svíþjóð eftir að fótur af klaufdýri fannst í einum bagga síðdegis á mánudag. Líklega er um fót af dádýri að ræða að því er fram kemur í tilkynningu frá Matvælastofnun. Þar segir jafnframt að dýrahræ geti borið með sér smitefni og sem varúðarráðstöfun hefur fyrirtækið innkallað alla sendinguna af spæninum og stöðvað dreifingu.

Lífland tilkynnti Matvælastofnun síðla mánudags um að alifuglabóndi hefði fundið fót af klaufdýri í innfluttum spæni sem hann var að dreifa í tómu alifuglahúsi. Spænirinn var fjarlægður, húsið þvegið og sótthreinsað. 

Í kjölfarið og í samráði við stofnunina brást Lífland við og stöðvaði strax dreifingu á spæni úr viðkomandi gámi. Hringt var í þá aðila sem vitað var að hefðu keypt úr gáminum og varan innkölluð. Ein hestavöruverslun á höfuðborgarsvæðinu hafði fengið spæni úr viðkomandi sendingu sem hún hafði í almennri sölu. Nokkurn tíma tók að hafa uppi á öllum kaupendum, en í morgun náðist í þann síðasta.

Aðeins sex eigendur höfðu borið spæninn undir hross og einn þeirra undir sauðfé að auki. Hafa þeir nú hreinsað viðkomandi stíur samkvæmt leiðbeiningum frá Matvælastofnun. Þá segir í tilkynningunni að hverfandi líkur séu taldar á að smit hafi borist í dýr hér á landi við þetta atvik, en þó verður eftirlit með heilsufari dýranna sem komust í snertingu við spæninn aukið næstu vikurnar.

Matvælastofnun hefur óskað eftir upplýsingum frá dýraheilbrigðisyfirvöldum í Svíþjóð um sjúkdómastöðu í hjartardýrum þar í landi. Samkvæmt fyrstu svörum er ekki vitað um alvarlega smitsjúkdóma í þeim.

Samkvæmt upplýsingum frá sænska fyrirtækinu er framleiðslulínan lokuð og með þannig tækjabúnaði að fóturinn sem fannst hafi ekki geta farið þar í gegn, því telur fyrirtækið að honum hafi verið komið fyrir og að um skemmdarverk sé að ræða í verksmiðjunni . Málið er rannsakað sem slíkt í Svíþjóð. Matvælastofnun vill þakka Líflandi fyrir ábyrg og snör viðbrögð svo og öllum þeim sem komu að þessari innköllun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert