Hvetja til aðgerða gegn kynbundu ofbeldi

Sveitarfélög eru hvött til að setja sér formlega stefnu og …
Sveitarfélög eru hvött til að setja sér formlega stefnu og viðbragðsáætlun vegna eineltis, ofbeldis og kynferðislegrar og kynbundinnar áreitni. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga hvetur sveitarstjórnir landsins til að ræða leiðir gegn kynferðisofbeldi og –áreitni í stjórnmálum og á vinnustöðum sveitarfélaga.

Halldór Halldórsson, formaður sambandsins, fjallaði á stjórnarfundi þess um frumkvæði stjórnmálakvenna „Í skugga valdsins“ og mikilvægi þess að sveitarfélög láti sig málið varða. Stjórnin samþykkti samhljóða tillögu formanns um að baráttuverkefnið „Í skugga valdsins“ yrði sett á dagskrá.

Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Ljósmynd/Aðsend


Á stjórnarfundinum var einnig bent á nauðsyn þess að öll sveitarfélög setji sér formlega stefnu og viðbragðsáætlun vegna eineltis, ofbeldis og kynferðislegrar og kynbundinnar áreitni. „Enda sé slík hegðun ólíðandi með öllu,“ segir í tilkynningu frá sambandinu. 

Stefna og viðbragðsáætlun sambandsins í þessu efni er aðgengileg á heimasíðusíðu þess og eru sveitarfélög sem ekki hafa myndað sér stefnu í málaflokknum hvött til að nýta sér stefnuna sem fyrirmynd. 

Á fundinum var auk þess samþykkt að málefnið verði tekið til sérstakrar umfjöllunar á landsþingi sambandsins á næsta ári og verði hluti af því námsefni sem kennt er á námskeiðum fyrir sveitarstjórnarmenn í kjölfar næstu sveitarstjórnarkosninga.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert