Fitch hækkar lánshæfiseinkunn ríkisins

mbl.is/Hjörtur

Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings tilkynnti í dag hækkun lánshæfiseinkunnar ríkissjóðs á langtímaskuldbindingum í innlendum og erlendum gjaldmiðli í „A“ úr „A-“. Horfur fyrir einkunnina eru ennfremur sagðar stöðugar.

Fram kemur í rökstuðningi Fitch að helstu drifkraftar að baki hækkuninni séu efnahagsstöðugleiki, batnandi ytri staða þjóðarbúsins og skuldalækkun hins opinbera ásamt öflugum hagvexti. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

„Þetta eru ánægjulegar fréttir fyrir nýja ríkisstjórn. Hækkun lánshæfiseinkunnarinnar staðfestir trú sérfræðinga Fitch á styrk hagkerfisins og á þau markmið sem sett eru í sáttmála ríkisstjórnarinnar um að áfram verði hlúð að stöðugleika í efnahagsmálum,“ er haft eftir Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra. Hækkun Fitch nú er fjórða hækkunin á lánshæfi ríkissjóðs á árinu 2017.

„Hækkunin mun hafa jákvæð áhrif á vaxtakostnað ríkisins og annarra aðila sem taka lán, þar með talið banka, orkufyrirtækja og annarra innlendra fyrirtækja, sem að lokum mun skila sér í bættum hag heimila,“ er einnig haft eftir ráðherranum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert