Vatnsrík jörð til sölu nærri Gvendarbrunnum

Mikið og gott aðgengi er sagt vera að ferskvatni á …
Mikið og gott aðgengi er sagt vera að ferskvatni á jörðinni. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

„Ég er bara nauðbeygður til að gera þetta, en þeir hafa neitað mér um gjörsamlega allt sem ég hef farið fram á,“ segir Konráð Adolphsson.

Hann hefur nú auglýst til sölu eða leigu 4,6 hektara land við Hólmsá, svonefndan Oddfellowblett úr landi jarðarinnar Gunnarshólma í Kópavogi.

Konráð sendi í mars 2014 fyrirspurn um hvort leyft yrði að byggja allt að 400 fermetra íbúðarhús ásamt allt að 200 fermetra hesthúsi á Oddfellowbletti með líku sniði og leyft hefði verið á sínum tíma á lóðum í landi Vatnsenda við Elliðavatn. Skipulagsnefnd Kópavogs hafnaði beiðninni og bæjarstjórn Kópavogsbæjar staðfesti þá afgreiðslu í apríl 2016, að því er fram kemur í frétt um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert