Verkfall hefur ekki áhrif hjá WOW air

A330 breiðþota WOW-air
A330 breiðþota WOW-air

Kjarasamningar Flugvirkjafélags Íslands við WOWair runnu út í október. Óskar Einarsson formaður segir að viðræður standi yfir og ekkert bendi til annars en að þær leiði til samninga.

Hjá Icelandair starfa 280-290 félagsmenn Flugvirkjafélagsins en rétt um 60 hjá WOW air. Félagið hefur boðað verkfall hjá Icelandair að morgni 17. þessa mánaðar.

Hugsanlegt verkfall raskar fjótt flugáætlun Icelandair en á ekki að hafa áhrif á flug WOW air eða erlendra félaga sem hingað fljúga, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert