Full samstaða um fjárhagsáætlunina

Reykjanesbær.
Reykjanesbær. www.mats.is

Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar 2018-2022 var samþykkt með öllum atkvæðum bæjarfulltrúa á bæjarstjórnarfundi 5. desember. Fram kemur í fréttatilkynningu að þetta sé í fjórða sinn á kjörtímabilinu sem full samstaða sé um fjárhagsáætlun. Fram kemur að áætlunin nái til 2022 til samræmis við aðlögunaráætlun Reykjanesbæjar sem gildi til og með árinu 2022 og fjárhagsáætlun þurfi að taka mið af.

„Nokkrar breytingar urðu á A-hluta bæjarsjóðs á milli fyrri umræðu og seinni umræðu og fór Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri yfir þær breytingar á bæjarstjórnarfundinum. Áætlað er að tekjur A-hluta bæjarsjóðs verði 13,905 milljarðar en gjaldaliðir 12,272 og framlegðin því 1.633 milljónir. Aðrir liðir eru óbreyttir. Rekstrarniðurstaða A-hluta bæjarsjóðs eftir fjármagnsgjöld og afskriftir er áætluð rúmlega 394 milljónir.“

Enn fremur segir að forsendur fjárhagsáætlunar Reykjanesbæjar fyrir árin 2018 til og með 2022 séu að mestu leyti byggðar á þjóðhagsspá Hagstofu Íslands sem birst hafi í maí 2017. „Nokkrir óvissuþættir eru í áætlun, s.s íbúaþróun til næstu ára, sem hefur verið fordæmalaus á undanförnum mánuðum og meiri en annars staðar, breytingar í starfsemi Helguvík varðandi stóriðjur, skipakomur og fleira henni tengdu.“

Þá segir að opinn íbúafundur um fjárhagsáætlunina verði haldinn miðvikudaginn 13. desember í Bíósal DUUS Safnahúsa klukkan 17:30-19:00. Þar verði farið yfir stöðuna og meðal annars kynntar helstu áherslur einstakra sviða á næsta ári. Þar gefist kjörið tækifæri til að kynna sér þessi málin betur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert