Þrír árekstrar á Akureyri í kvöld

Áreksturinn á gatnamótum Glerárgötu og Dalsbrautar var töluvert harður.
Áreksturinn á gatnamótum Glerárgötu og Dalsbrautar var töluvert harður. Mynd/Þorgeir Baldursson

Þrír árekstrar hafa orðið með skömmu millibili á Akureyri í kvöld, en glerhált er á götum bæjarins eftir að snögghlýnaði í kvöld, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri. Að minnsta kosti einn áreksturinn, á gatnamótum Dalsbrautar og Glerárgötu, var töluvert harður, en lítil sem engin slys urðu á fólki.

Að sögn lögreglu urðu hin slysin tvö einnig á gatnamótum þar sem ökumönnum tókst ekki að stöðva bíla sína vegna hálku.

Lögregla segir erfitt að gera sér grein fyrir hálkunni enda virðist göturnar frekar vera blautar en hálar. Þær leyni hins vegar á sér og varla sé stætt sumstaðar. Það sé því ekki úr vegi að minna fólk á að fara sérstaklega varlega ætli það sér að vera á ferli á Akureyri í kvöld, bæði gangandi og akandi.

Glerhált er á götum Akureyrar.
Glerhált er á götum Akureyrar. Mynd/Þorgeir Baldursson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert