Flutningabíll lokar veginum við Jökulsárlón

Bíllinn er við eystri enda brúarinnar við Jökulsárlón.
Bíllinn er við eystri enda brúarinnar við Jökulsárlón. mbl.is/Ómar Óskarsson

Þjóðvegi 1 við Jökulsárlón er lokaður um óákveðinn tíma vegna flutningabíls sem er skorðaður fastur í hálku við afleggjarann að aðstöðunni við lónið. Samkvæmt upplýsingum lögreglu er núna unnið að því að fá tæki og græjur til að reyna að losa bílinn þar sem hann er skorðaður fastur, en á meðan verður lokað fyrir umferð um þjóðveginn, við eystri enda brúarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert