Isavia mun aðstoða Icelandair

Frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar. mbl.is/Ómar

Isavia, sem annast rekstur Keflavíkurflugvallar, segir fyrirtækið fylgjast grannt með kjaradeilu Flugvirkjafélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins vegna Icelandair.

„Við hjá Isavia vonum að deiluaðilar finni lausn í málinu,“ segir Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia.

Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia
Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia Ljósmynd/Isavia

Flugvirkjar hafa boðað til ótímabundins verkfalls frá klukkan sex að morgni sunnudags.

„Isavia mun aðstoða Icelandair að fremsta megni við að veita farþegum þjónustu komi til röskunar á flugi,“ segir Guðjón.

Nýjasti sáttafundur flugvirkja og SA í deilunni hófst hjá ríkissáttasemjara klukkan 14.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert