WOW air fjölgar ekki flugferðum

Flugfél WOW air, TF-SKY.
Flugfél WOW air, TF-SKY. Ljósmynd/WOW air

Flugáætlanir WOW air munu haldast óbreyttar fram að mögulegu verkfalli flugvirkja hjá Icelandair á sunnudaginn.

„Við vonum að það komi ekki til verkfalls. Það verður endurskoðað hvort við bætum við ferðum ef það kemur til verkfalls,“ segir Svanhvít Friðriksdóttir, upplýsingafulltrúi WOW air.

Flugvirkjar hjá WOW air hafa undanfarið átt í kjaraviðræðum við fyrirtækið en samningarnir losnuðu 31. október. Þeirri deilu hefur þó ekki verið vísað til ríkissáttasemjara.

„Okkar flugvirkjar eru ekki á leið í verkfall eins og staðan er núna,“ segir Svanhvít.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert