Handekinn fyrir húsbrot og líkamsárás

mbl.is/Hjörtur

Rétt fyrir klukkan níu í gærkvöldi var karlmaður handtekinn í Grafarvogi grunaður um húsbrot, heimilisofbeldi, líkamsárás, eignaspjöll, akstur undir áhrifum fíkniefna og aka sviptur ökuréttindum.  Maðurinn var vistaður í fangageymslu lögreglu vegna rannsóknar málsins.

Þá var annar karlmaður handtekinn um klukkan fjögur í nótt í Austurstræti grunaður um líkamsárás. Maðurinn var einnig vistaður í fangageymslu vegna rannsóknar málsins.

Karlmaður var einnig handtekinn á bar við Smiðjuveg í Kópavogi klukkan tvö í nótt grunaður um eignaspjöll. Maðurinn var ölvaður og var vistaður í fangageymslu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert