Jólahátíð barnanna í Norræna húsinu

mbl.is/​Hari

Jólahátíð barnanna fer fram í Norræna húsinu í dag á milli klukkan 11 og 17. Boðið er upp á fjölda skemmtilegra viðburða fyrir alla fjölskylduna. Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir.

Meðal þess sem verður boðið upp á er jólaverkstæði þar sem hægt er að föndra ýmislegt. Þá verður hægt að uppgötva Norræna húsið í gegnum nýja þrautabók fyrir börn.

Þá verður jólaball með Þorra og Þuru þar sem dansað verður í kringum jólatré og sungið í hátíðarsal Norræna hússins. Búast má við að jólasveinninn kíki við.

mbl.is/​Hari
mbl.is/​Hari
mbl.is/​Hari
mbl.is/​Hari
mbl.is/​Hari
mbl.is/​Hari
mbl.is/​Hari
mbl.is/​Hari
mbl.is/​Hari
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert