Síbrotamaður handtekinn í vínbúð

mbl.is/Hjörtur

Karlmaður, sem grunaður er um að hafa verið á ferðinni um skeið og hnuplað varningi úr verslunum á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum, var í fyrradag handtekinn eftir tilraun til þjófnaðar úr vínbúð.

Maðurinn hafði heimsótt sömu verslun fyrir nokkrum dögum og þá stolið áfengispela. Á upptöku úr öryggismyndavél sást til kauða við það athæfi og þegar hann mætti aftur í vínbúðin í vikunni, sömu erinda, handtók lögreglan á Suðurnesjum hann. Til viðbótar við önnur brot var hann með kannabis í tösku sem hann hafði meðferðis í vínbúðina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert