Stálu tölvubúnaði fyrir tugi milljóna

Verið var að setja upp gagnaver í húsinu.
Verið var að setja upp gagnaver í húsinu. mbl.is/Svanhildur Eiríksdóttir

Tölvubúnaði að verðmæti um 20 milljónir króna var stolið úr húsnæði að Heiðartröð 554, á Ásbrú í Reykjanesbæ, aðfaranótt 6. desember síðastliðins. Í húsnæðinu var verið að setja upp gagnaver og var búnaðurinn til þess ætlaður. Um er að ræða 600 skjákort, 100 aflgjafa, 100 móðurborð, 100 minniskubba og 100 örgjörva og var þetta allt glænýtt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Sá eða þeir sem þarna voru að verki komust inn í gegnum lítið gat á norðurgafli hússins en fyrir það hafði verið fest spónaplata. Innbrotið átti sér stað á tímabilinu frá 20:00  að kvöldi þriðjudagsins 5. desember til kl. 09:10 að morgni miðvikudagsins 6. desember.

Í byggingu að Heiðartröð 555 hafði einnig verið farið og þaðan einnig stolið nokkru af tölvubúnaði.

Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar málið og biður þá sem kunna að búa yfir upplýsingum um það, að hafa samband í síma 444-2200. Þá biður lögregla fólk einnig að hafa samband verði það vitni að því að verið sé að bjóða til sölu nýjan tölvubúnað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert