Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út um þrjúleytið í nótt eftir að tilkynning barst um eld í bifreið á bílastæði Húsasmiðjunnar í Helluhrauni. Töluverður eldur var í bílnum þegar slökkvilið kom á svæðið.
Vel gekk að slökkva eldinn með froðu og vatni. Verulegar skemmdir urðu hins vegar á bílnum sem var fjarlægður af stæðinu og hefur lögreglan á höfuðborgarsvæðinu nú tekið við rannsókninni.