Píratar vilja enn borgaralaun

Halldóra Mogensen.
Halldóra Mogensen. mbl.is/Kristinn Magnússon

Píratar hafa lagt fram þingsályktun um um skilyrðislausa grunnframfærslu, öðru nafni borgaralaun. Fyrsti flutningsmaður er Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata, en aðrir þingmenn flokksins eru meðflutningsmenn.

Frétt mbl.is: Bjarni bjólar í borgaralaun

Fram kemur í þingsályktunartillögunni að verði hún samþykkti verði það verkefni falið félags- og jafnréttismálaráðherra í samstarfi við fjármála- og efnahagsráðherra að skipa starfshóp „sem kortleggi leiðir til að tryggja öllum borgurum landsins skilyrðislausa grunnframfærslu með það að markmiði að styrkja efnahagsleg og félagsleg réttindi fólks og stuðla að jöfnum tækifærum.“

Frétt mbl.is: Sakaði forsætisráðherra um þvætting

Tillagan hefur ítrekað verið lögð fram á undanförnum árum ekki ekki náð fram að ganga. Í greinargerð með henni segir: „Skilyrðislaus grunnframfærsla er hugmynd að kerfi sem ætlað er að leysa almannatryggingakerfið af hólmi eða í það minnsta einfalda það verulega, gera það réttlátara og sömuleiðis uppræta ákveðinn innbyggðan ójöfnuð í samfélaginu. Þetta er framkvæmt með því að greiða hverjum og einum borgara fjárhæð frá ríkinu óháð atvinnu eða öðrum tekjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert