Fá viðbótargreiðslu í desember

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að verja 4,6 milljónum króna af ráðstöfunarfé sínu til greiðslu til hælisleitenda til viðbótar við fastar framfærslugreiðslur í desember líkt og gert hefur verið undan farin ár.

Fram kemur í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu að ekki hafi verið til staðar reglur um þessar greiðslur heldur verið tekin ákvörðun hverju sinni og fyrir vikið alltaf verið framkvæmt með sama hætti. Ennfremur segir að 518 hælisleitendur njóti nú þjónustu hjá Útlendingastofnun og sveitarfélögunum Reykjavík, Reykjanesbæ og Hafnarfirði. Þar af séu 403 fullorðnir og 114 börn.

„Það er ánægjulegt að ríkisstjórnin gat brugðist við með þessum hætti nú“, sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra að afloknum ríkisstjórnarfundi í morgun. „Mér finnst afar mikilvægt að mál sem þessi séu í föstum farvegi til framtíðar litið þannig að ekki skapist óvissa eða mismunun frá einu ári til annars og við munum í framhaldinu vinna að því að það verði gert.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert