„Gefur lítið tilefni til bjartsýni“

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands telur fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar auka bilið á milli …
Miðstjórn Alþýðusambands Íslands telur fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar auka bilið á milli ríkra og fátækra í samfélaginu. mbl.is/Hjörtur

Fjárlagafrumvarp nýrrar ríkistjórnar gefur lítið tilefni til bjartsýni. Svo segir í ályktun miðstjórnar ASÍ um frumvarpið.

„Að óbreyttu mun bilið á milli ríkra og fátækra í samfélaginu enn fara vaxandi,“ segir meðal annars í ályktun ASÍ.

Miðstjórnin fagna auknum framlögum til heilbrigðiskerfisins en segir þau duga með engu móti til að mæta þerri miklu fjárþörf sem til staðar er.

Þá gagnrýnir miðstjórn ASÍ ríkisstjórnina fyrir að sýna viljaleysi til að auka jöfnuð og endurreisa réttindi launafólks. „Þetta birtist m.a. í veikingu á barna- og vaxtabótakerfinu og virðingaleysi fyrir afkomutryggingu launafólks í atvinnuleysistryggingum, ábyrgðasjóði launa og fæðingarorlofi. Gríðarlegur húsnæðisvandi þeirra tekjulægstu er ekki tekinn alvarlega og sá hluti menntakerfisins sem þjónar launafólki með litla formlega menntun er vanræktur. Þá sjást engin merki um að efna eigi loforð um efling verk- og starfsnáms,“ segir í ályktun stjórnarinnar.

ASÍ segir fjárlagafrumvarpið ekki duga til þess að leggja grunn að samráði og samstarfi við aðila vinnumarkaðarins um efnahagslegan og samfélagslegan stöðugleika. Þá er vonbrigðum lýst með að ríkisstjórnin ætli ekki að hafa neitt frumkvæði að bættum lífskjörum og auknu afkomuöryggi félagsmanna ASÍ.

Telja bilið milli ríkra og fátækra aukast

Í ályktuninni er einnig vísað í rannsókn hagdeildar ASÍ á þróun skattbyrði launafólks síðastliðin 20 ár. Í henni kemur fram að skattbyrði launafólks hefur aukist og þeim mun meira eftir því sem tekjurnar eru lægri. „Það eru því mikil vonbrigði að ekki sé brugðist við þessari þróun í fjárlagafrumvarpinu heldur þvert á móti haldið áfram á sömu braut með því að lækka útgjöld til barnabóta, vaxtabóta og húsnæðisbóta. Tekjuójöfnuður mun halda áfram að aukast þar sem dregið er enn frekar úr jöfnunarhlutverki skattkerfisins.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert