Vilja byggja upp traust eftir skell

Helga Vala Helgadóttir.
Helga Vala Helgadóttir. mbl.is/Hari

„Við ræddum viðkvæma stöðu ráðherra eftir dóm Hæstaréttar,“ sagði Helga Vala Helgadóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar eftir fund nefndarinnar, í samtali við mbl.is. Landsréttarmálið var til umræðu á fundinum.

Dómararnir Ástráður Har­alds­son og Jó­hann­es Rún­ar Jó­hanns­son fengu samtals 1,4 milljónir króna í miskabætur vegna skipunar dómara við landsrétt. Hæfis­nefnd lagði til að 15 ein­stak­ling­ar yrðu skipaðir í jafn­mörg embætti dóm­ara en Sig­ríður And­er­sen dóms­málaráðherra lagði hins veg­ar til við Alþingi að fjór­ir aðrir yrðu skipaðir í stað jafn­margra í til­lögu nefnd­ar­inn­ar.

Nefndin lagði til þá Ástráð og Jóhannes en þeir voru ekki í tillögu ráðherra og höfðuðu skaðabótamál. Hæstirétt­ur komst að þeirri niður­stöðu að þeim hefði ekki tek­ist að sýna fram á að þeir hefðu orðið fyr­ir tjóni vegna máls­ins en dæmdi ríkið til þess að greiða þeim 700 þúsund krón­ur hvor­um vegna þess að málsmeðferðin hafi ekki sam­rýmst lög­um.

Sérfræðingar kallaðir fyrir nefndina

Það var ákveðið að kalla fyrir nefndina okkar helstu sérfræðinga í stjórnskipunarrétti til að ræða stjórnskipulega stöðu ráðherra sem og stöðu þingsins,“ sagði Helga Vala en sá fundur fer fram á nýju ári.

Einnig ákvað nefndin að kalla eftir öllum gögnum málsins frá ráðuneytinu til að átta sig á þeirri vinnu sem hefði átt sér stað. Helga Vala sagði býsna góða samstöðu um þetta í nefndinni og í raun hefði enginn verið ósáttur.

Við ræddum þetta fram og til baka en þegar við ræddum næstu skref voru allir sammála um mikilvægi þess að fara í þetta. Það þarf auðvitað að byggja svolítið upp traust á framkvæmdavaldi og Alþingi eftir svona skell eins og var í Hæstarétti í gær.

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði í morgun að hann teldi enga ástæðu til að rannsaka málið frekar og að það væri fullskoðað. Helga Vala er ósammála Bjarna. „Við erum ósammála því. Málið er ekki fullskoðað. Tveir fulltrúar Sjálfstæðisflokks í nefndinni voru sammála því að það þyrfti að fara yfir þetta í kjölfar dómsins.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagðist taka dómnum alvarlega og það ætti að læra af honum. Fara yrði yfir regluverkið í kringum málsmeðferðarreglurnar svo að svona mál myndu ekki endurtaka sig. „Ég gerði ekki kröfu um af­sögn ráðherr­ans síðasta vor vegna máls­ins og geri það held­ur ekki nú,“ sagði Katrín.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert