Að ákvörðun lögreglu hefur leit verið hætt í Hvalfirði en þar hafa um fjörutíu björgunarsveitarmenn og þrír björgunarbátar tekið þátt í leitaraðgerðum eftir að tilkynning barst frá vegfaranda um ljósmerki frá sjó um klukkan 12.
Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir menn hafa verið búna að leita af sér allan grun.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var komin á loft til að taka þátt í aðgerðunum þegar ákvörðun lögreglu var tekin. Aðstæður til leitar þóttu góðar, bjart en kalt.