Þyrla mögulega leigð til útlanda

TF-SYN á flugi.
TF-SYN á flugi. mbl.is/Árni Sæberg

Landhelgisgæslan hefur til skoðunar að leigja þyrluna TF-SYN í verkefni erlendis í að minnsta kosti tvo mánuði á þessu ári.

Með þessu hyggst Gæslan loka gati sem myndaðist við lækkun fjárheimilda í fyrra, að því er fram kemur í umfjöllun um fjárhag Gæslunnar í Morgunblaðinu í dag.

Samkvæmt fjáraukalögum sem Alþingi samþykkti undir lok nýliðins árs voru framlög til Landhelgisgæslunnar lækkuð um 61,4 milljónir fyrir árið 2017 vegna breyttra gengisforsendna. Og samkvæmt fjárlögum ársins 2018 lækka framlög til rekstrar LHG um 20,2 milljónir króna á milli ára.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert