Hátekjuhópar fái sexfalt meira en lág- og millitekjufólk

ASÍ segir að þróun persónuafsláttar hafi meiri áhrif á skattbyrði …
ASÍ segir að þróun persónuafsláttar hafi meiri áhrif á skattbyrði eftir því sem tekjur séu lægri og myndi í raun skattleysismörk að óbreyttu skatthlutfalli, sem líta megi á sem fyrsta þrep tekjuskattskerfisins. mbl.is/​Hari

ASÍ segir að skattbreytingar stjórnvalda muni auka ráðstöfunartekjur hátekjuhópa sexfalt meira en lág- og millitekjufólks. 

Þetta kemur fram á vef ASÍ.

Þar segir, að um áramót hafi persónuafsláttur hækkað til samræmis við hækkun á verðlagi undanfarið ár en efri tekjumörk hafi hækkað til samræmis við launavísitölu, eins og lög geri ráð fyrir.

„Alþýðusambandið hefur ítrekað vakið athygli á þessu ósamræmi í framkvæmd skattkerfisins, sem leiðir kerfisbundið til aukins tekjuójafnaðar. Þannig nam hækkun persónuafsláttur 1,9%, hann fór úr 52.907 kr. í 53.895 kr. Á sama tíma hækkuðu tekjumörk í efra skattþrepi um 7,1% og greiðist tekjuskattur í efra skattþrepi nú af tekjum yfir 893.713 krónur á mánuði í stað 834.707 kr. áður.

Þróun persónuafsláttar hefur meiri áhrif á skattbyrði eftir því sem tekjur eru lægri og myndar í raun skattleysismörk að óbreyttu skatthlutfalli, sem líta má á sem fyrsta þrep tekjuskattskerfisins. Tekjumörk í efra skattþrepi hafa hins vegar einungis áhrif á skattbyrði tekjuhærri hópa. Þannig má segja að tekjumörkin í fyrsta þrepi (skattleysismörkin) hafi um áramót hækkað úr 143.224 krónum á mánuði í kr. 145.899 eða um 1,9% á sama tíma og tekjumörkin í efra þrepi hækkuðu úr 834.707 kr. í 893.713 kr. eða um 7,1%,“ segir ASÍ.

Þá kemur fram, að þetta misræmi valdi því að ráðstöfunartekjur hátekjufólks muni aukast mun meira en þeirra tekjulægri.

„Þannig lækkaði sem dæmi staðgreiddur tekjuskattur og útsvar hjá einstaklingi með 350.000 krónur í mánaðarlaun um áramótin úr 71.211 krónum á mánuði í kr. 70.223 krónur og ráðstöfunartekjur þessa einstaklings jukust þannig um 988 krónur á mánuði eða 11.800 krónur á ári sem samsvarar 0,3% aukningu ráðstöfunartekna. Ef litið er á hag þeirra sem eru með tekjur yfir efri tekjumörkunum skattkerfisins, þ.e. yfir 893.713 kr., lækkar staðgreiddur tekjuskattur og útsvar hins vegar mun meira hjá þeim eða um 6.476 krónur á mánuði. Ráðstöfunartekjur þeirra hækka því um ríflega 77.700 krónur á ári, sem samsvarar t.a.m. 0,9% aukningu ráðstöfunartekna hjá einstaklingi sem hefur 1.000.000 kr. mánaðarlaun,“ segir ASÍ.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert