Vilja byrja sem fyrst að byggja í Hnoðraholti

Hnoðraholt.
Hnoðraholt.

Stefnt er að því að ljúka deiliskipulagi í Vetrarmýri í Garðabæ á næstu mánuðum og hefja þar framkvæmdir við fjölnota íþróttahús með yfirbyggðum knattspyrnuvelli í ár.

Nýlega lauk framkvæmdasamkeppni um rammaskipulag í Vetrarmýri, Hnoðraholti og við Vífilsstaði og er ráðgert að þar verði um 1.500 íbúðir.

Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ,  að jafnframt verði Hnoðraholtið deiliskipulagt sem íbúðabyggð, en vestasti hluti þess byggðist fyrir 30 árum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert