Tvær þyrlur frá í 6-8 vikur

TF-LIF og TF-GNA, fara í svokallaða stóra skoðun á þessu …
TF-LIF og TF-GNA, fara í svokallaða stóra skoðun á þessu ári. Útköll í fyrra voru fleiri en nokkru sinni. mbl.is/Árni Sæberg

Tvær björgunarþyrlur Landhelgisgæslunnar, TF-LIF og TF-GNA, fara í svokallaða stóra skoðun á árinu. Þyrlurnar verða ekki í notkun á meðan eða í sex til átta vikur hvor.

Þetta kemur fram í svari Sveins H. Guðmarssonar, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar, við fyrirspurn Morgunblaðsins.

Þriðja þyrlan, TF-SYN, fer ekki í skoðun á árinu. Að sögn Sveins er TF-SYN minnst notuð í leitar- og björgunarútköll enda eru hinar þyrlurnar tvær mun betur búnar í lögbundin verkefni stofnunarinnar.

Viðbúnaður Landhelgisgæslunnar miðast við að ávallt séu tvær þyrluáhafnir á vakt og því skiptir mestu að tvær þyrlur séu til taks. Í fyrra voru að minnsta kosti tvær þyrlur til taks 96 prósent af árinu en fjögur prósent af árinu var aðeins ein þyrla til taks, að því er fram kemur í umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert