226 milljóna kr. kaup í Gufunesi

Fasteignirnar eru gamalt sérhæft verksmiðjuhús sem hýsti á sínum tíma …
Fasteignirnar eru gamalt sérhæft verksmiðjuhús sem hýsti á sínum tíma vissan hluta starfsemi Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi og birgðaskemmur Áburðarverksmiðjunnar. Hlutar húsnæðisins eru með mikilli lofthæð sem getur t.a.m. hentað vel til leikmyndagerðar. Allar eignirnar þarfnast talsverðs viðhalds. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Borgarráð Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í gær að selja fyrirtækinu Loftkastalanum þrjár fasteignir og byggingarrétt í Gufunesi. Loftkastalinn greiðir 226 milljónir króna fyrir fasteignirnar og byggingarrétt með gatnagerðargjöldum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg, en þar segir að borgin hafi með stefnumörkun og skipulagssamkeppni ákveðið að á nýjum lóðum í Gufunesi komi starfsemi sem tengist aðallega kvikmyndagerð. Loftkastalinn sé félag sem vinni að nýsmiði, leikmyndagerð, nýsköpun og hönnun, þróun á vélum og verkfærum fyrir kvikmyndagerð.

Þá segir, að nú þegar hafi tvö fyrirtæki í kvikmyndaiðnaði keypt eignir á svæðinu og séu því ákveðin kjölfesta fyrir áframhaldandi þróun svæðisins.

„Tvö önnur fyritæki sem sérhæfa sig í ljósa-, hljóð- og myndbúnaði hafa fengið lóðarvilyrði í Gufunesi. Það er því ljóst að mikil hreyfing er á þróun svæðisins en fyrirtæki Baltasars Kormáks hefur leitt þróunina og þegar hafist handa við að breyta gömlu Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi í kvikmyndaver sem verður eitt það stærsta sinnar tegundar í Evrópu.

Loftkastalinn greiðir 226 milljónir króna fyrir fasteignirnar og byggingarrétt með gatnagerðargjöldum,“ segir í tilkynningu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert