Tilraun með kynfræðslu frá 1. upp í 10. bekk

Tveir skólar í Reykjavík munu á næsta skólaári taka þátt …
Tveir skólar í Reykjavík munu á næsta skólaári taka þátt í tilraunaverkefni til þriggja ára þar sem lögð verður áhersla á bætta fræðslu. mbl.is/​Hari

„Með þessu verður kynfræðsla mun markvissari í skólakerfinu en áður og gefst nemendum, allt frá 1. bekk og upp í 10. bekk, tækifæri til að byggja ofan á fyrri þekkingu sína.“

Þetta segir Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, verkefnastjóri jafnréttismála hjá skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar, í samtali við Morgunblaðið en skóla- og frístundaráð hefur nú samþykkt að setja af stað tilraunaverkefni um kynfræðslu í tveimur grunnskólum á næsta skólaári.

Verkefnið byggist á tillögu starfshóps sem skilaði skýrslu sinni í ársbyrjun 2017. Hafa Seljaskóli, félagsmiðstöðin Hólmasel og Heilsugæslan í Mjódd þegar samþykkt að taka þátt í verkefninu, svo og Foldaskóli, félagsmiðstöðin Fjörgyn og Heilsugæsla Grafarvogs. Fræðslustarfið verður á sameiginlegri ábyrgð kennara, frístundaráðgjafa og skólahjúkrunarfræðinga.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert