Viðamiklar breytingar á umferðarlögum

Ekið eftir Hringbrautinni í Reykjavík.
Ekið eftir Hringbrautinni í Reykjavík. mbl.is/Kristinn Magnússon

Heildarendurskoðun umferðarlaga felur í sér viðamiklar og margar breytingar. Á meðal nýjunga í áformuðu lagafrumvarpi eru ákvæði um lækkun leyfislegs magns áfengis í blóði ökumanna, ákvæði um snjalltæki verði skýrt og endurbætt, ákvæði um akstur í hringtorgum og að hámarkssektarfjárhæð verði hækkuð úr 300 þúsund krónum í 500 þúsund.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu sem undirbýr endurskoðunina. Frestur til að koma að ábendingum og umsögnum er til og með 2. febrúar.

Samhliða hækkun á sektarfjáræð stendur til að uppfæra reglugerð um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim.

Á meðal annarra nýjunga í lagafrumvarpinu er nýr kafli um hjólreiðar, ákvæði um að samspil ólíkra samgöngumáta verði gerð skýrari, ákvæði um að ljósaskyldu verði skýrari, ákvæði um neyðarakstur verði gerð ítarlegri og að samspil og uppbygging ákvæða laganna um framúrakstur verði einfölduð.

Hringtorg við Hamraborg í Kópavogi.
Hringtorg við Hamraborg í Kópavogi. mbl.is/Brynjar Gauti

Nefnd skipuð árið 2007

„Vegna margvíslegra breytinga og nútímavæðingar í umferðarmálum er talið að með heildarendurskoðun laganna sé helst unnt að ná markmiðum um að skýr lagasetning tryggi umferðaröryggi enn frekar. Samgönguráðherra skipaði árið 2007 nefnd til að endurskoða umferðarlög og var frumvarp lagt fram á Alþingi veturinn 2012-2013 en ekki afgreitt,“ segir í tilkynningunni.

„Úrlausnarefni nýrra umferðarlaga er að tryggja umferðaröryggi enn frekar og nauðsynlegt að uppfæra gildandi ákvæði til samræmis við reynslu liðinna áratuga og þróun í umferðarmálum.“

Ítarlegri ákvæði um neyðarakstur verða í frumvarpinu.
Ítarlegri ákvæði um neyðarakstur verða í frumvarpinu. mbl.is/Eggert

Fram kemur að frumvarpið hafi verið sent helstu hagsmunaaðilum til umfjöllunar síðasta sumar. Áfram er fyrirhugað víðtækt samráð auk þess sem leitað hefur verið umsagna með kynningu frumvarpsins á vef ráðuneytisins og hjá fagráði um umferðarmál.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert