110 nautgripir aflífaðir

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. mbl.is/Styrmir Kári

110 nautgripir af bænum Eystri-Grund við Stokkseyri voru aflífaðir og þeim fargað að fyrirskipun atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins í lok síðustu viku. Nautgripirnir á bænum höfðu haft aðgang að óvörðum og götuðum sekkjum af kjötmjöli sem ætlað var að nota sem áburð. Þetta kemur fram í tilkynningu

Nautgripirnir voru aflífaðir í sláturhúsi, sýni tekin og áhættuvefir sendir í brennslu. Afurðir dýranna verða ekki nýttar til manneldis og verður fargað. Notkun kjötmjöls sem fóður eða til fóðurgerðar fyrir dýr sem alin eru til manneldis er bönnuð til að hindra að heilahrörnunarsjúkdómar berist í menn og dýr.

Matvælastofnun lagði bann á markaðssetningu afurða og slátrun til manneldis og flutning gripa frá bænum í mars sl. og óskaði í kjölfarið eftir fyrirskipun ráðuneytisins um niðurskurð allra gripa sem höfðu haft aðgang að kjötmjölinu á býlinu.

Niðurstaða atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins um niðurskurð lá endanlega fyrir í lok júní eftir að kröfu eiganda gripanna um frestun réttaráhrifa hafði verið hafnað af hálfu ráðuneytisins. Í framhaldi niðurskurðar mun atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið ákvarða bætur til umráðamanns gripanna.

Matvælastofnun þakkar öllum sem tóku þátt í aðgerðunum fyrir veitta aðstoð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert