Fjármálalæsi íslenskra nemenda metið í PISA árið 2021

Ráðherra telur brýnt að íslensk ungmenni taki þátt í fjármálalæsi …
Ráðherra telur brýnt að íslensk ungmenni taki þátt í fjármálalæsi í PISA-könnunni. mbl.is/Arnaldur

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur ákveðið að Ísland verði með í valkvæðum hluta PISA-könnunarinnar árið 2021 sem snýr að fjármálalæsi 15 ára nemenda. Tilgangur þessa hluta PISA er að meta hæfni nemenda til að beita fjármálalegri þekkingu sinni og leikni í raunverulegum aðstæðum, þ.m.t. að taka fjármálalegar ákvarðanir.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Þar er haft eftir Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráðherra, að fjármálalæsi sé grunnfærni sem sé mikilvæg samfélagi okkar. Ljóst sé að gott fjármálalæsi skili sér í betri ákvarðanatöku einstaklinga í fjármálum og stuðli að fjármálastöðugleika.

Ráðherra telur brýnt að íslensk ungmenni taki þátt í fjármálalæsi í PISA-könnunni og því hafi þessi ákvörðun verið tekin.

PISA er umfangsmikil alþjóðleg langtímarannsókn á vegum OECD á hæfni og getu 15 ára nemenda í lesskilningi, læsi á náttúrufræði og læsi á stærðfræði. Auk þessara kjarnagreina geta löndin valið um að taka þátt í nokkrum viðbótarkönnunum sem eru annað hvort í formi spurningalista eða prófs. Fjármálalæsi er eitt af þessum valkvæðu sviðum og hefur verið í boði síðan árið 2012. 15-18 lönd hafa tekið þátt í þeim hluta PISA-könnunarinnar, að því er segir í tilkynningu ráðuneytisins.

PISA könnunin sem nær til yfir 80 þjóða er eina alþjóðlega samanburðarrannsóknin á frammistöðu menntakerfisins sem fram fer hér á landi. Könnunin er lögð fyrir á þriggja ára fresti með mismunandi áherslur hverju sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert