Forsætisnefnd fundar um starfskjör alþingismanna

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis.
Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis. mbl.is/Eggert

Forsætisnefnd Alþingis mun koma saman á fundi á mánudag þar sem upplýsingar um starfskjör alþingismanna verða teknar til umræðu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Steingrími J. Sigfússyni, forseta Alþingis.

Þar segir að undanfarna daga hafi honum, þingmönnum öllum og skrifstofu þingsins borist fjöldinn allur af fyrirspurnum um starfskjör alþingismanna, ýmist með ósk um upplýsingar um heildarkostnað eða sundurgreindar greiðslur og endurgreiðslur til einstakra þingmanna.

Undanfarið hefur verið fjallað um akst­urs­kostnað þing­manna í fyrra sem nam rúm­lega 29 millj­ón­um króna og var kostnaður fyr­ir þann þing­mann sem fékk hæst­an end­ur­greidd­an kostnað 4,6 millj­ón­ir króna. Þingmaðurinn, Ásmund­ur Friðriks­son, þingmaður Sjálf­stæðis­flokks­ins, tel­ur umræðuna um end­ur­greiðslu sína vegna akst­urs­kostnaðar meiri en góðu hófi gegni og hefur hann greint frá því að hon­um finnist um­fjöll­un fréttamiðla á tíðum jaðra við einelti.

Frétt mbl.is: Telur fréttaflutning jaðra við einelti

Næst á dagskrá í þessu máli er að forsætisnefnd Alþingis mun halda áfram umfjöllun sinni um þær reglur sem í gildi eru og taka þær til endurskoðunar, fyrirkomulag þeirra, eftirfylgni og upplýsingagjöf,“ segir í tilkynningu frá forseta Alþingis.

Á fundinum á mánudag verður beiðnum fjölmiðla um frekari upplýsingar vísað inn í vinnu forsætisnefndar og henni „hraðað eins og kostur er,“ líkt og segir í tilkynningu.

Steingrímur hefur áður greint frá því að til skoðunar hef­ur verið und­an­farna mánuði að auka upp­lýs­inga­gjöf um kjör og starfs­kostnaðargreiðslur alþing­is­manna á vef Alþing­is.

Frétt mbl.is: Birtar verði auknar upplýsingar um kostnað

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert