Hótaði starfsmanni með hníf

mbl.is/Hjörtur

Lögreglu barst tilkynning klukkan hálfátta í kvöld um einstakling sem kom inn í verslun í miðborginni sem var mjög ógnandi og vildi fá ákveðna vöru afgreidda. Hann hafði hins vegar ekki viðeigandi skilríki og var neitað um afgreiðslu. 

Þá dró hann upp hníf og hótaði starfsmanni áður en hann hvarf á braut, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. 

Þrettán mínútum seinna var einstaklingurinn handtekinn af lögreglu og vistaður í fangaklefa. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert