Hækkun á styrk svifryks og köfnunarefnisdíoxíðs við umferðargötur

Nú er hægur vindur, götur þurrar og litlar líkur á …
Nú er hægur vindur, götur þurrar og litlar líkur á úrkomu næstu daga. Búist er við svipuðum veðurfarsaðstæðum og því líkur á svifryks- og köfnunarefnisdíoxíðmengun við umferðargötur. mbl.is/Kristinn Magnússon

Styrkur svifryks (PM10) hefur farið hækkandi það sem af er degi samkvæmt mælingum í mælistöðvum við Grensásveg, Hringbraut og Eiríksgötu. Klukkan 11 var hálftímagildi svifryks við Grensásveg 118 míkrógrömm á rúmmetra.

Í mælistöð við Hringbraut var hálftímagildið á sama tíma 154 míkrógrömm á rúmmetra og við Eiríksgötu 74 míkrógrömm á rúmmetra.

Fram kemur í tilkynningu frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, að köfnunarefnisdíoxíð hafi einnig mælst nokkuð hátt í sömu stöðvum. Nú sé hægur vindur, götur þurrar og litlar líkur á úrkomu næstu daga. Búist sé við svipuðum veðurfarsaðstæðum og því líkur á svifryks- og köfnunarefnisdíoxíðmengun við umferðargötur.

Sólarhringsheilsuverndarmörkin fyrir svifryk eru 50 míkrógrömm á rúmmetra og fyrir köfnunarefnisdíoxíð eru mörkin 75 míkrógrömm á rúmmetra.

Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum og börn ættu að forðast útivist  í nágrenni stórra umferðagatna.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Hægt er að fylgjast með styrk svifryks og annarra mengandi efna á http://reykjavik.is/thjonusta/loftgaedi-i-reykjavik. Þar má sjá kort yfir mælistaði í Reykjavík. Loftgæðafarstöðvar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur eru nú staðsettar við leikskólann Grænuborg við Eiríksgötu og við Hringbraut 26.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert