Kalla eftir upprætingu á siðrofi

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

„Íslenskt láglaunafólk er ávallt látið bera ábyrgð á þeim meinta „stöðugleika“ sem bæði ríkisvaldið og Samtök atvinnulífsins leggja áherslu í sínum málflutningi. Báran, stéttarfélag kallar eftir upprætingu á því siðferðisrofi, virðingarleysi og misskiptingu sem viðgengst í samfélaginu og gerir kröfu um samfélagslega ábyrgð allra.“ Þetta er meðal þess sem kemur fram í ályktun trúnaðarráðs stéttarfélagsins Bárunnar sem samþykkt var á fundi í gærkvöldi.

Trúnaðarráðið harmar það siðferðisrof og þá lítilsvirðingu sem einkennir íslenskt samfélag.

„Á meðan aðilar vinnumarkaðarins ræða um forsendubrest og hvað sé til ráða birtast fréttir af launum og/eða sporslum þingmanna, æðstu embættismanna ríkisins og þeirra sem raða sér í efstu lög launa með  „löglegri“  sjálftöku,“ segir jafnframt í ályktuninni.

Misskipting og sjálftaka sérstakra hópa viðgangist á meðan almennt launafólk hafi sætt grímulausum skerðingum meðal annars á húsnæðis, vaxtabótum og atvinnuleysisbótum. Þá hafi persónuafsláttur gjörsamlega tapað verðgildi sínu og ávinningur af áherslum verkalýðshreyfingarinnar á lægstu launin hafi stjórnvöld tekið til baka með skerðingum sem ekki sjái fyrir endann á.

„Samtökum atvinnulífsins er tíðrætt um þann kaupmátt sem áunnist hefur og telja ófært að bregðast við forsendubresti sem ekki er fyrir hendi að þeirra mati. Samtök atvinnulífsins hafa vægast sagt dregið lappirnar frá síðustu samningum og ekki unnið að þeim málum sem þó var samið um að yrði gert milli samninga. Báran, stéttarfélag fagnar yfirlýsingu um breytt vinnubrögð og skorar á SA að koma að borðinu nú þegar og ljúka síðustu samningagerð.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert