Anna ekki pöntunum á lúxusbílum

Íris B. Ansnes í nýjum Jaguar-sportbíl í nýju sýningarrými BL …
Íris B. Ansnes í nýjum Jaguar-sportbíl í nýju sýningarrými BL á Hesthálsi. Vandaðasta útfærslan af Jaguar F kostar 30,39 milljónir. mbl.is/​Hari

Benedikt Eyjólfsson, forstjóri Bílabúðar Benna, segir að leita þurfi samanburðar við olíuríki til að finna jafnmikla sölu á Porsche-bílum miðað við höfðatölu og á Íslandi. Hann óttast að umboðið muni ekki geta flutt inn nógu marga Porsche-bíla í ár til að anna eftirspurn.

BL hefur opnað nýjar höfuðstöðvar fyrir Jaguar og Land Rover. Íris B. Ansnes  framkvæmdastjóri Jaguar Land Rover á Íslandi segir í Morgunblaðinu í dag, að með tilliti til  hagsveiflunnar eigi sala til einstaklinga mikið inni.

„Við teljum að þetta ár verði mjög gott í sölu lúxusbíla. Kaupmáttur er góður sem og andinn í þjóðfélaginu. Við teljum okkur því vera með rétta vöru á réttum tíma,“ segir Íris.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert