Rigning bindur svifrykið

Við losnum við svifrykið þegar fer að rigna.
Við losnum við svifrykið þegar fer að rigna. mbl.is/Eggert

Allt útlit er fyrir rigningu suðvestan til á landinu og segir veðurfræðingur Veðurstofu Íslands að við það ætti svifryksmengunin þá loks að dvína í höfuðborginni.

Í Öræfum, Mýrdal og undir Eyjafjöllum má búast má við snörpum vindhviðum lengst af þangað til um hádegi á morgun.

„Nú hlýnar smátt og smátt næsta sólahring og hiti fer yfir frostmark víðast hvar á landinu í dag og á morgun með hlýrri suðaustanátt og röku lofti. Búast má við talsverðri úrkomu suðaustan og austanlands. Áfram snjóar í fjöll en rignir á láglendi.

Þá er einnig er útlit fyrir að rigni suðvestan til, og ætti svifryksmengunin þá loks að dvína í höfuðborginni. Svipað útlit er næstu daga og fram yfir helgi, þó dragi heldur úr úrkomu um helgina,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Veðurspá fyrir næstu daga

Austan og síðar suðaustan 8-15 m/s en 15-23 og snarpar hviður syðst á landinu og í Öræfum. Lægir heldur á Norðvesturlandi á morgun. Víða rigning með köflum en slydda eða snjókoma í fyrstu. Samfelld úrkoma suðaustanlands og á Austfjörðum, rigning á láglendi en slydda eða snjókoma til fjalla. Hiti 1 til 6 stig í dag en 2 til 8 stig á morgun, mildast sunnanlands.

Á fimmtudag:
Suðaustan 8-15 m/s en 5-10 á norðvestanverðu landinu. Skýjað og víða rigning, talsverð suðaustanlands og á Austfjörðum en úrkomulítið á Norðurlandi. Hiti 2 til 8 stig, mildast syðst. 

Á föstudag og laugardag:
Suðaustan 8-13 og dálítil væta, en hægari vindur og þurrt um landið norðanvert. Áfram milt í veðri. 

Á sunnudag, mánudag og þriðjudag:
Útlit allhvassa sunnanátt með rigningu sunnan- og vestanlands, en léttskýjað á Norður- og Austurlandi. Hiti 2 til 7 stig, en frystir að næturlagi fyrir norðan og austan.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert