Íbúar verði á varðbergi í páskafríinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvetur íbúa á höfuðborgarsvæðinu til að tilkynna …
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvetur íbúa á höfuðborgarsvæðinu til að tilkynna um allar grunsamlegar mannaferðir sem það verður vart við yfir páskana. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvetur fólk til að vera á varðbergi í páskafríinu og láta vita verði það vart við grunsamlegar mannaferðir.

Fjöldi innbrota hefur verið á höfuðborgarsvæðinu síðustu mánuði og stendur nú yfir umfangsmikil rannsókn á skipulögðum innbrotum. Rann­sókn­in er viðamik­il, en á þriggja mánaða tíma­bili frá des­em­ber til fe­brú­ar voru tæp­lega 130 inn­brot í heima­hús til­kynnt til lög­regl­unn­ar á höfuðborg­ar­svæðinu, þar af um 50 í síðasta mánuði.

Frétt mbl.is: Umfangsmikil rannsókn á skipulögðum innbrotum

„Nú þegar páskarnir eru fram undan og viðbúið að margir verði á faraldsfæti vill lögreglan ítreka að fólk láti vita um grunsamlegar mannaferðir (taki ljósmyndir ef slíkt er mögulegt) og að það skrifi líka hjá sér, t.d. bílnúmer eða jafnvel lýsingar á fólki, ef eitthvað óvenjulegt á sér stað í nánasta umhverfi þess,“ segir í tilkynningu á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Lögreglan bendir á að innbrotsþjófar fylgist gjarnan með húsum áður en þeir láta til skarar skríða og hringi jafnvel dyrabjöllunni og þykjast vera að spyrja eftir einhverjum.

„Munið að það er betra að hringja einu sinni of oft í lögregluna með upplýsingar af þessu tagi en einu sinni of sjaldan,“ segir í tilkynningunni.

Nágrannavarsla getur skipt sköpum

Lögreglan vill einnig minna íbúa á mikilvægi þess að ganga tryggilega frá heimilum sínum, svo sem með því að loka gluggum þegar það fer að heiman. „Ekki er úr vegi að tilkynna nágrönnum um slíkt, en nágrannavarsla getur skipt sköpum þegar kemur að því að upplýsa innbrot eða koma í veg fyrir þau,“ segir í tilkynningu.

Sömuleiðis bendir lögreglan á að mikilvægt er að fólk upplýsi ekki um fjarveru sína fyrir allra augum þegar farið er í frí, til dæmis með tilkynningu á samfélagsmiðlum.

Lögreglan verður með hefðbundið eftirlit um páskana, en áhersla verður lögð á að fylgjast með íbúðarhúsnæði eins og kostur er.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert