Katrín fundaði með framkvæmdastjórum OECD

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fundaði með François de Rugy, forseta franska …
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fundaði með François de Rugy, forseta franska þjóðþingsins, í París í gær. Ljósmynd/Stjórnarráð Íslands

Heimsókn Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, til Parísar þar sem hún heimsótti Efnahags- og framfarastofnunina (OECD), lauk í gær. Þar fundaði hún meðal annars með Audrey Azouley og Ángel Gurría, aðalframkvæmdastjórum OECD. Á fundunum var farið yfir framboð Íslands til setu í framkvæmdastjórn UNESCO sem og árangur og áskoranir í efnahagsmálum.

Í frétt á vef stjórnarráðsins kemur einnig fram að Katrín hafi einnig tekið þátt í setningarathöfn Anti – Corruption & Integrity Forum með ávarpi og þátttöku í pallborði. Þar talaði hún um heilindi í stjórnmálum, stjórnsýslu og atvinnulífinu og áskoranir á því sviði.

Aðrir þátttakendur í setningarathöfninni voru Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, Gabriela Michetti, Frans Timmermans, Delia Matilde Ferreira Rubio og Gabriela Ramos.

Árangur Íslands á sviði jafnréttismála og framlag til umbóta á alþjóðavettvangi var einnig til umræðu og ákveðið að Ísland skipuleggi rakarastofuráðstefnu í OECD í haust.

Þá fundaði Katrín einnig með François de Rugy, forseta franska þjóðþingsins og fulltrúum Íslandsvinafélags franskra þingmanna í gær. Fyrir þeim hópi þingmanna fer Eric Coquerel.

Á fundinum greindi forsætisráðherra frá helstu áherslum ríkisstjórnarinnar, meðal annars hvað varðar heilbrigðis-,mennta- og samgöngumál, og sagði frá markmiðum um kolefnishlutlaust Ísland árið 2040.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert