Hundur beit barn í andlitið

mbl.is/Eggert

Ungt barn var í gær flutt á spítala eftir að hundur beit andlit þess illa í Kópavogi þannig að verulega sá á andlitinu. 

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Kópavogi var farið með hundinn á dýraspítala og var honum lógað en ekki voru tiltækar upplýsingar um líðan barnsins. 

Samkvæmt heimildum mbl.is er barnið fimm ára gamalt og var um að ræða stóra tegund hunds. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert