Stefna Sjálfstæðisflokksins í borginni kynnt

Eyþór Arnalds á íbúafundi í Grafarholti á dögunum.
Eyþór Arnalds á íbúafundi í Grafarholti á dögunum. mbl.is/Hari

Blaðamannafundur lista Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn var haldinn í Iðnó í morgun þar sem stefnumál flokksins voru kynnt fyrir fjölmiðlum og flokksmönnum.

Í tilkynningu frá flokknum segir að um sé að ræða kosningaloforð sem snerti alla íbúa höfuðborgarinnar, þar á meðal „grundvallarbreytingar í málefnum eldri borgara, samgöngumálum og húsnæðisuppbyggingu“.

Eyþór Arnalds, oddviti listans, fór fyrir kynningunni en aðrir frambjóðendur flokksins voru viðstaddir. Fundinum var streymt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert