Lindár verði verndaðar

Árnar streyma fram í Bárðardal.
Árnar streyma fram í Bárðardal. mbl.is/Sigurður Bogi

„Lindárnar eru afar verðmætar. Úrkoman hripar niður í jarðveginn, vikra og hraun á öræfunum, og sprettur svo fram í lindum neðar í landinu og við hálendisbrúnina,”  segir Snorri Baldursson fulltrúi í stjórn Landverndar. „Þetta er fágætt á heimsvísu. Þegar vatnið rennur svona í gegnum landið safnar það í sig næringarefnum svo lindárnar eru ríkar af lífi.“

Þorna upp 

Friðlýsa á helstu lindár á Íslandi vegna mikils náttúruverndargildis þeirra eða tryggja með öðrum hætti að þeim verði hlíft við virkjanaframkvæmdum. Þetta segir í drögum að ályktun sem lögð verður fyrir aðalfund Landverndar sem haldinn verður á morgun. Vísað er í þessu efni til Svartár í Bárðardal og Tungufljóts í Biskupstungum, sem báðar stendur til að virkja. Þær séu á  vatnsmestu lindasvæðum Íslands og  heimsins alls.

Snorri Baldursson líffræðingur sem situr í stjórn Landverndar.
Snorri Baldursson líffræðingur sem situr í stjórn Landverndar. Mbl.is/ Þórður Arnar Þórðarson

Um Svartá segir að áin hafi alþjóðlegt verndargildi sem fuglasvæði vegna hús- og straumandar og geymir merkilegan urriðastofn og njóti því vinsælda veiðimanna. Mótvægisaðgerðir muni væntanlega ekki bjarga ánni frá því að þorna upp tímabundið á um þriggja kílómetra kafla neðan stíflu sem á að reisa.

Ekkert má fara úrskeiðis

Tungufljót í Árnessýslu er, segir Landvernd, á miklu lindasvæði og rétt við fyrirhugað virkjunarsvæðið er sé vatnsból Bláskógabyggðar. Því megi ekkert fara úrskeiðis. Virkjunarsvæði séu sé ósnortið, á náttúruminjaskrá og þar náttúrlegan birkiskógur og votlendi. Virkjun hafi áhrif ásýnd, landslag og gróður. Eigi að síður hafi Bláskógabyggð út framkvæmdaleyfi fyrir virkjuninni í febrúar síðastliðnum, en þá ákvörðun kærðu  Landvernd og Náttúruverndarsamtök Íslands.

„Í náttúruverndarlögum er heimild fyrir því að friða megi lindár og við höfðum til þess í ályktunardrögunum. Það er engin þörf á því að virkja meira eins og sakir standa, þar ráða skammtímasjónarmið og gróðavon,“ segir Snorri.

Lindá fellur fram. Á Syðri-Fjallabaksleið.
Lindá fellur fram. Á Syðri-Fjallabaksleið. mbl.is/Sigurður Bogi
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert