Munaði engu að illa færi

Herjólfur.
Herjólfur. mbl.is/Sigurður Bogi

Minnstu mátti muna að illa færi en aðeins 148 metrar voru á milli flutningaskipsins Arnarfells og farþegaferjunnar Herjólfs í ágúst síðastliðnum. Andvara- og samskiptaleysi stjórnenda Herjólfs er talin helsta ástæðan, samkvæmt rannsóknarnefnd samgönguslysa.

Atvikið átti sér stað 2. ágúst í fyrra en þá lagði Herjólfur úr höfn í Vestmannaeyjum klukkan 18.45 og var stefnan sett á Landeyjahöfn. Arnarfell var statt milli á milli Vestmannaeyja og lands á leið frá Færeyjum til Reykjavíkur.

Í niðurstöðu rannsóknarnefndar samgönguslysa segir að vakthafandi skipstjórnarmenn hafi ekki vitað um hvorn annan fyrr en skipin komu í augsýn undan Elliðaey klukkan 18.54. 

„Herjólfur var með Arnarfell á stjórnborða og þurfti stjórnandi þess að beygja til stjórnborða til að forða árekstri þegar stutt var á milli skipanna,“ segir í niðurstöðunni. Minnsta fjarlægðin á milli skipanna var 0,08 sjómílur eða um 148 metrar. 

Samkvæmt yfirstýrimanni Arnarfells var fjarlægðin milli skipanna þegar þau komu í augsýn hvort við annað 0,95 sjómílur. Þá sáu menn að við óbreyttar forsendur yrði árekstur. Herjólfur hefði dregið úr ferð en það hefði haft lítil áhrif vegna þess að mjög stutt var á milli skipanna. Eins og áður sagði þurfti stjórnandi Arnarfells síðan að beygja til stjórnborða til að forða árekstri.

Eftir atvikið var verklagi breytt um borð í Herjólfi í þá veru að koma veg fyrir að svona gerðist aftur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert