Kjólakrafan kemur að utan

Stefán Magnússon, framkvæmdastjóri Hard Rock á Íslandi.
Stefán Magnússon, framkvæmdastjóri Hard Rock á Íslandi. mbl.is/Kristinn

Stefán Magnússon, framkvæmdastjóri Hard Rock Café á Íslandi, segir að krafan um að kvenkyns starfsmenn Hard Rock klæðist kjólum komi frá stjórnendum Hard Rock að utan.

Starfs­menn Hard Rock Café í Reykja­vík leituðu til Efl­ing­ar í gær vegna breyt­inga á regl­um fyr­ir­tæk­is­ins um klæðaburð kvenna á vinnustaðnum. Hingað til hafa kon­ur á vinnustaðnum klæðst skyrt­um og bux­um, líkt og karl­ar, en nú fer fyr­ir­tækið fram á að þær klæðist kjól­um í stað skyrtna og buxna.  

„Eflingu verður svarað á föstudaginn og vonandi klárast þetta þá, þá verða öll svör komin og allt á hreinu,“ segir Stefán í samtali við mbl.is.

Stefán segir að um sé að ræða vinnureglur og að staðurinn þurfi að fara eftir þeim líkt og gert hefur verið frá því að Hard Rock opnaði á ný á Íslandi í október 2016.

„Ég mun taka viðtöl við þá sem vilja tala við mig á föstudaginn, þá verður þetta allt komið á hreint,“ segir Stefán, sem gat ekki sagt til um hvort til greina komi að hætta við að nota kjólana. „Það fer allt eftir þeim úti.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert