Vilja að Ísland taki ekki þátt í Eurovision

Netta fagnar sigri í Eurovision. Ekki eru allir sáttir við …
Netta fagnar sigri í Eurovision. Ekki eru allir sáttir við að keppnin verði haldin í Ísrael. AFP

Tæplega 5.000 manns hafa nú skráð nafn sitt á undirskriftalista sem stofnaður var eftir að Ísrael fór með sigur í Eurovision, en á síðunni er hvatt til þess að Ísland taki ekki þátt í keppninni það árið.

Á síðu undirskriftalistans, sem Árni St. Sigurðsson stofnaði, segir að „í ljósi mannréttindabrota Ísraelsríkis gagnvart palestínsku þjóðinni er ekki siðferðilega verjandi að taka þátt í glanskeppni eins og Eurovision í skugga þess ofbeldis sem Ísrael beitir nágranna sína. Ísraelsríki hefur á undanförnum mánuðum myrt tugi einstaklinga fyrir það eitt að mótmæla ástandinu.“

Fé­lagið Ísland-Palestína hef­ur meðal annarra gagn­rýnt Evr­ópu fyr­ir að hafa ekki staðið með mann­rétt­ind­um þegar Ísra­el stóð uppi sem sig­ur­veg­ari keppn­inn­ar á laug­ar­dag. Þá hef­ur stjórn­ar­maður vara­stjórn­ar fé­lags­ins hvatt Íslend­inga til að sniðganga keppn­ina.

„Við ger­um fast­lega ráð fyr­ir því að vera með að ári eins og við ger­um alltaf,“ sagði Skarp­héðinn Guðmunds­son, dag­skrár­stjóri RÚV, í samtali við mbl.is í gær.

„Við get­um orðað það þannig á þessu stigi að það er allt tekið til skoðunar,“ seg­ir Skarp­héðinn. „Við eig­um eft­ir að funda um þetta og meta stöðuna eins og við ger­um alltaf. Það er ým­is­legt sem spil­ar inn í, hvar keppn­in er hald­in og kostnaður við að taka þátt í keppn­inni og svo­leiðis.“

4.989 manns höfðu skrifað nafn sitt á listann er fréttin var birt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert