Einbýlishús gleymdist í Hnífsdal

Við Skólaveg stendur þetta hús sem gleymdist í nokkurn tíma.
Við Skólaveg stendur þetta hús sem gleymdist í nokkurn tíma. Ljósmynd/Fasteignavefur mbl.is

Við Skólaveg 5 í Hnífsdal má finna 130 fermetra einbýlishús sem staðið hefur autt í nokkur ár, en fasteignin er í eigu Íbúðalánasjóðs.

Þegar nágrannar höfðu samband við sjóðinn, meðal annars til að kvarta undan órækt í garði hússins og útbreiðslu kerfils þaðan í nálæga garða, kom í ljós að húsið var ekki skráð á sölu. Hafði þá gleymst að setja fasteignaauglýsinguna aftur í birtingu eftir að ákveðið var að taka hana tímabundið út af sölusíðum, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

„Ég held að þetta hús sé nú bara að verða ónýtt – það er orðið hálfmyglað að innan,“ sagði íbúi í Hnífsdal í samtali við Morgunblaðið. „Húsið lítur sæmilega út að utan, en það er kerfill í öllum garðinum og hann er farinn að breiða vel úr sér,“ bætti Hnífsdælingurinn við, en tekið er sérstaklega fram í fasteignaauglýsingu hússins, sem birt var í vikunni, að lóðin sé „falleg og gróin“.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert