Von á hlaupi úr Grímsvötnum

Vatn er farið að renna úr Grímsvötnum samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi, en þar er vísað í tilkynningu frá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands.

Fram kemur að ekki sé von á stærra hlaupi en verið hafi síðustu ár. Vatnshæðarmælir við Gígjukvísl sýni ekki hækkun vatnsborðs eða rafleiðni en búast megi við að breyting verði þar á síðdegis á morgun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert