Fleiri þúsund tóku þátt í Color Run / Litahlaupinu í miðborginni í morgun. Loka þurfti fjölmörgum götum vegna hlaupsins og virtist fólk skemmta sér vel þegar ljósmyndari mbl.is átti leið um.
Undanfarin þrjú ár hefur verið uppselt í hlaupið en svo var ekki í ár en aðeins nokkrir miðar voru eftir þegar hlaupið hófst í morgun. Hlaupið fór einnig fram á Akureyri í fyrra og verður svo einnig í ár.
Lokanir allra gatna voru frá kl. 9.00 en áætlaðar opnanir aftur verða mismunandi. Áætlað er að götur austan Ingólfsstrætis opni kl. 13.30, allar aðrar götur klukkan 14.30 að undanskildum Skothúsvegi sem áætlað er að opni kl. 16.00.
Gjaldskrá Reykjavík:
Miðaverð frá 8. maí og fram að hlaupi - kr. 6.499 (almennt verð)
Gjaldskrá Akureyri:
Miðaverð frá 6. mar til 11. júní - kr. 5.499 (15% afsláttur)
Miðaverð frá 12 .júní og fram að hlaupi - kr. 6.499 (almennt verð)