Íslandi gengur vel í brids

Fyrsta öldungalandslið Íslands í brids keppir á EM í Belgíu.
Fyrsta öldungalandslið Íslands í brids keppir á EM í Belgíu.

Þrjú íslensk lið keppa á Evrópumóti í brids, sem haldið er í Oostende í Belgíu. Keppni er hafin í opnum flokki en keppni í kvennaflokki og öldungaflokki hefst á morgun.

Í opnum flokki er lokið 10 umferðum af 33 og er íslenska liðið í 4. sæti. Liðið hefur spilað vel og aðeins tapað einum leik með litlum mun. Í liðinu spila Jón Baldursson, Sigurbjörn Haraldsson, Aðalsteinn Jörgensen, Matthías Þorvaldsson, Ómar Olgeirsson og Ragnar Magnússon en Anton Haraldsson er fyrirliði.

Í kvennaflokki eru 23 lið. Íslenska liðið skipa Anna Ívarsdóttir, Guðrún Óskarsdóttir, Anna G. Nielsen, Helga H. Sturlaugsdóttir, María Haraldsdóttir og Stefanía Sigurbjörnsdóttir en fyrirliði er Sveinn R. Eiríksson.

Ísland sendir nú í fyrsta skipti lið til keppni í öldungaflokki, en í honum keppa spilarar fæddir 1957 og fyrr. Þar spila Björn Eysteinsson, Guðmundur Sv. Hermannsson, Haukur Ingason, Þorlákur Jónsson, Karl Sigurhjartarson og Sævar Þorbjörnsson en Guðmundur Baldursson er fyrirliði.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert