Dagur áfram borgarstjóri

Nýr meirihluti var kynntur með formlegum hætti við Breiðholtslaug í …
Nýr meirihluti var kynntur með formlegum hætti við Breiðholtslaug í morgun. mbl.is/Árni Sæberg

Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, verður áfram borgarstjóri Reykjavíkur. Þetta kom fram á blaðamannafundi Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og VG.

Á fundinum var kynnt niðurstaða og samkomulag um málefni, verkaskiptingu og stjórn borgarinnar á næsta kjörtímabili.

Ný borgarstjórn tekur við á borgarstjórnarfundi sem haldinn verður 19. júní. 

Fundurinn fór fram við Breiðholtslaug í morgun, en viðstaddir voru tveir efstu menn allra flokkanna. Borgarfulltrúarnir hafa undanfarna daga fundað um myndun nýs meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur.  

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar, verður formaður borgarráðs. Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata, verður forseti borgarstjórnar fyrsta árið, en Pawel Bartoszek, annar maður á lista Viðreisnar, mun svo taka við.

Líf Magnudóttir, oddviti Vinstri grænna, verður varaformaður borgarráðs. Sigurborg Ósk Haraldsdóttir í Pírötum mun leiða samgöngu- og skipulagsráð borgarinnar.

Þórdís sagði á fundinum að flokkarnir hefðu frá byrjun unnið út frá því sem sameini þá og þeir hafi fljótlega komist að því að lítið væri sem sundraði þá málefnalega. Dagur sagði að meirihlutinn hefði samþykkt að fækka ráðum í borginni, en á móti yrðu þau styrkt.

Samkvæmt tilkynningu frá meirihlutanum kemur fram að umhverfismál, jafnréttismál, lýðræði, samfélag fyrir alla, þjónusta borgarinnar, húsnæðismál og borgarlína verði meginatriði hjá nýjum meirihluta.

Farið var yfir helstu atriði samstarfssáttmála flokkanna en í upphafsorðum sáttmálans segir:

„Við sem myndum meirihluta borgarstjórnar höfum sammælst um að gera góða borg betri. Við ætlum að byggja öflugt og þétt borgarlíf fyrir okkur öll með nægu framboði af húsnæði, sjálfbærum hverfum, heilnæmu umhverfi, skilvirkum samgöngum, fjölbreyttu atvinnulífi og einfaldri, aðgengilegri og lýðræðislegri umsýslu. Við ætlum að auka lífsgæði fólks og búa til borg þar sem það er gott að vera og gera. Við sem myndum meirihluta borgarstjórnar á kjörtímabilinu spönnum breitt pólitískt litróf. Við höfum fjölbreytta sýn og ólíkar áherslur en það sem sameinar okkur eru hagsmunir og lífsgæði borgarbúa og skynsamleg uppbygging Reykjavíkur til framtíðar. Að því marki stefnum við í þessum sáttmála.“

Verkaskipting og formennska í helstu ráðum og nefndum:

Borgarstjóri: Dagur B. Eggertsson

Formaður borgarráðs: Þórdís Lóa Þórhallsdóttir

Forseti borgarstjórnar: Dóra Björt Guðjónsdóttir fyrsta árið en Pawel Bartoszek tekur svo við

Umhverfis- og heilbrigðisráð: Líf Magneudóttir

Formaður Mannréttinda- og lýðræðisráðs: Dóra Björt Guðjónsdóttir

Skóla- og frístundaráð: Skúli Helgason

Velferðarráð: Heiða Björg Hilmisdóttir

Skipulags- og samgönguráð: Sigurborg Ósk Haraldsdóttir

Menningar- og íþróttaráð: Pawel Bartoszek fyrsta árið en Hjálmar Sveinsson tekur svo við

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert